Ragnheiður Guðfinna
Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir er með meistaragráðu í Félags- og vinnusálfræði. Ragnheiður hefur unnið sem ráðgjafi og handleiðari frá árinu 2010. Hún starfar nú sem sérfræðingur í sálfélagslegri vinnuvernd og ráðgjafi fyrir stjórnendur þegar kemur að huglægum- og félagslegum áhættuþáttum innan vinnustaða. Ragnheiður Guðfinna hefur getið sér orðspor sem frábær fyrirlesari og leggur hún áherslu á fræðslu um streitu, kulnun, samskiptastreitu og tilfinningagreind stjórnenda. Ragnheiður Guðfinna starfar jafnframt sem ráðgjafi og leiðbeinir einstaklingum varðandi heilbrigði hugar og líkama. Hún vinnur mikið með það hvernig einstaklingar geta bætt heilsu sína með því að taka ábyrgð á eigin líðan og hegðun.
Hafðu samband við Ragnheiði með því að senda henni tölvupóst á [email protected]